I might look like I am listening to you, but in my head I am playing them drums!
Le Drum HQ
Bless bless WordPress
Rímar smá er það ekki? Svona í ljósi nýjustu fregna eða ekki fregna af php veseni og af því maður var að reyna að gerast sjálfum sér nægur (sans substakkurinn) þá fór ég að hugsa hvort það væri ekki örugglega sniðug hugmynd að setja vefinn minn upp á umsjónarkerfi sem kostar ekki krónu og reiðir sig ekki á neitt aukaforrit eða þjónustu. Niðurstaðan var sú að henda sér á kerfi sem heitir Hugo og er gersamlega snautt af öllu hjálparveseni. Mínusinn er sá að þú þarft að kunna smá fyrir þér í forritun og notar ekki vefviðmót (eins og substakkurinn er). ...
Veljum Evrópskt
Undanfarið hef ég verið að leika mér að því að setja upp mitt eigið tölvuver í stofunni, sem mallar makindalega við hliðina á sjónvarpinu, samhliða því að læra á Python í hjáverkum. Hvað gerir maður annað þegar heilinn kallar á áskoranir og maður er ekki lengur að nema neitt eftir þrjár háskólagráður? Heilinn í mér er oft eins og heilinn í Sherlock Holmes, sem lýsti því yfir að hugur sinn risi gegn stöðnun. Munurinn er sá að Holmes þurfti sjö prósent kókaínlausn þegar verkefnin vantaði, en ég læt mér nægja Python-villumeldingar. ...
Tilraun til skáldskapar
Fyrir allt of mörgum árum þegar ég var að nema skipstjórnarfræði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, var ég staddur í íslenskutíma hjá hvers kennara sem mér er löngu flogið úr minni því miður. Rámar þó eitthvað í að hann hafi svarað nafninu Þorvaldur, er þó ekki handviss. Nema hvað að í einum tímanum þá áttu nemendur að semja ljóð sem átti að hefjast á orðunum “ég er”, og áður en það hverfur gersamlega úr minni þá kemur það hér: ...
Leikurinn, leikreglurnar og það sem enginn spurði um
Niðurstaðan var þunn: 52,84 prósent sögðu nei, 47,16 prósent sögðu já þegar var búið að telja úr kjörkössunum. Gott og vel. Það sem var búið að dynja á áður en krossið var sett á kjörseðilinn þarf hins vegar að spyrja aðeins um. Ekki hverjir kusu hvað, heldur hvers vegna ákveðin rök hljómuðu sjálfsögð og önnur hljómuðu eins og sérviska. Kynnum til leiks Pierra Bourdieu. Hann fæddist árið 1930 í Denguin, litlu þorpi í Béarn í suðvesturhorni Frakklands. Faðir hans var póstmaður, kominn af leiguliðum, og heima var töluð béarníska frekar en franska. Þaðan komst Bourdieu inn í École normale supérieure í París, innsta hring franska menntakerfisins, þar sem synir borgarastéttarinnar lærðu að tala eins og þeir ættu staðinn. Það gerðu þeir reyndar. ...
Ein lítil historía
Ég hef undanfarið marghlustað á bækurnar Híf opp! og Laggó! á Storytel. Báðar fjalla þær um gamansögur af sjómönnum og kann ég höfundi þeirra, Guðjóni Inga Eiríkssyni, miklar þakkir get endalaust hlegið þegar ég hlusta á Hjálmar Hjálmarsson lesa þessar bækur. Ég er sjálfur gamall sjómaður, faðir minn skipstjóri í fjöldamörg ár á þeim sama báti og hefur skotið rótum á bílaplaninu hjá Byggðasafninu á Garðskaga og telst til einna minjanna á því góða safni. ...
Merkingin verður til í samtalinu
Þú rennir í gegnum símann að kvöldi til. Manneskja sem þú hefur aldrei hitt heldur litlu glasi af andlitskremi upp að myndavélinni, brosir og segir að það hafi „gjörbreytt húðinni hennar”. Innan sólarhrings hafa þúsundir keypt sama krem. Spurningin sem félagsfræðingurinn spyr er ekki hvort kremið virki, heldur hvers vegna orð ókunnugrar manneskju á skjá öðlast slíkt vald yfir hegðun okkar. Svarið má finna í hugmyndum sem eru næstum aldargamlar. Bandaríski félagsfræðingurinn Herbert Blumer (1900–1987) smíðaði árið 1937 hugtakið *symbolic interactionism* — táknbundin samskipti — og byggði þar á kenningum læriföður síns, George Herberts Mead. Þótt Blumer hafi mótað þessar hugmyndir löngu fyrir tíma samfélagsmiðla lýsa þær heimi áhrifavalda af óhugnanlegri nákvæmni. ...
Þegar tungumál þróast
“Hlöðumk búkum hölda, höfuð fjúka af strjúpa, kveifur ljúka lífi, lyddur krjúpa í djúpi.” Þetta er ein af fáum setningum sem ég man eftir að hafa flutt á sviði í Samkomuhúsinu í Garði fyrir allt of mörgum árum síðan í hlutverki Palla pílu – eilífðarstúdentins sem var jafnframt samferða honum Litla-Grúti í gegnum leikverkið Járnhausinn eftir þá bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni. Reyndar man ég eftir annari sem var stutt og laggott: “Ok munum vér husla hræit!” ...
Önnur lítil historía
Tilefni þessarar stuttu sögu er allt þetta fjas og þras sem kemur upp um leið og það er orðað að endurskoða kvótakerfið. Þeir sem lifa og hrærast í því og eiga sem mest af kvótanum mega náttúrulega ekki hugsa til þess hryllings að missa spón úr aski sínum og hefja kvótakerfið upp til skýja sem eitt besta stjórntæki sem til er og hafi í raun og veru bjargað hinum ýmsu fiskistofnum. Tveir bátar eru á sjó í fyrsta sinn eftir langa brælu, netin úti allan tímann. Annar báturinn selur fiskinn beint í eigin fiskverkun – hinn landar á markað. Þessi sem landar á markað er með fleiri net í sjó og fleiri menn á – hinn er ekki eins fjölmennur og ekki eins mörg net í sjó. ...
Happy new year!
Don’t forget to rock and roll in 2025 ok.
Valkyrjur
Merking orða og tákna í síbreytilegu samhengi Tákn og orð eru ekki aðeins verkfæri til samskipta heldur einnig spegilmynd samfélagsins sem notar þau. Í síbreytilegum heimi hafa þau tilhneigingu til að þróast og taka á sig nýjar merkingar sem endurspegla breytingar á menningu, sögu og gildismati. Orðið Valkyrja er áhugavert dæmi um slíka þróun, þar sem það hefur umbreyst úr goðsagnakenndu tákni í ýmis konar menningarlegar túlkanir í gegnum aldirnar. ...
